Anna María Sigurjónsdóttir ljósmyndari kom og myndaði gömlu snillingana í Öldungardeildinni; Sókrón, Kráku, Dúkkulísu og Von. Eins tók hún myndir af þeim afkvæmum Lýsu gömlu sem enn eru hér á húsi en það eru þau Ormur, Ljósfari Andvarason, Lovísa Toppsdóttir, Kráka og Dúkkulísa.
Starfsmenn við Hestamiðstöðina Dal veturinn 2009-10
Helle Laks
Halldór Guðjónsson
Hafliði Friðriksson
Telma verknemi frá Hólaskóla
Starfsmenn Dals
Halldór Guðjónsson tamningamaður og reiðkennari. Halldór er búfræðingur frá Hólaskóla ‘94-’95 og er með þjálfara og reiðkennarapróf frá Háskólanum á Hólum 2007. Hann hefur starfað í Dallandi frá árinu 1998 og við Hestamiðstöðina Dal frá 2003
Helle Laks tamningamaður og Þjálfari frá Hólaskóla hefur starfað undanfarin ár í Dal Hestamiðstöð.
Hafliði Friðriksson hefur starfað í Dallandi / Dal undanfarin 6 ár. Hans iðja eru öll helstu landbúnaðarstörf sem til falla. Störf hans eru mjög breytileg eftir árstíma og framkvæmdum en á vetrum sér hann aðallega um fóðrun útigangshrossa og yngstu kynslóðarinnar ásamt Gunnari og Þórdísi.Einnig er hann sá sem tekur verulega stóran þátt í útmokstrinum þar sem hann keyrir aðallega traktorinn.